Emmanuelle Alt

9. apríl 2008

Emmanuelle Alt er hetja.

Hún kann meira að segja að gera Kate Moss kúl.
Og þá erum við að tala um mikið. Úff. Kate “fake-fur vest” Moss.

Skór

8. apríl 2008

Ég hef ákveðið að blogga aftur eftir langt langt hlé.
Ástæðan?

Ég á afmæli 23. Júlí.
Byrjið þið að safna.
Takk.

Steingerður Sonja

Armani Privé

26. janúar 2008

Giorgio Armani og co eru að gera góða hluti í Privé línunni fyrir vor 2008. Alveg fáránlega góða hluti. Hún er nánast flekklaus, þegar ég fletti í gegnum hana þá sá ég ekki eina flík sem mér fannst ljót sem er oftast staðreyndin með flest ef ekki öll runway collections. Sniðin eru falleg og kvenleg og í kvöldklæðnaðnum fær tjullið að njóta sín sérstaklega í loka kjólnum sem hann tileinkaði Valentino sem er að leggjast í helgan stein í ár.











Auðvitað er þetta ekki beint eitthvað sem maður getur farið í í skólann á mánudeg. En á föstudegi væri það þó hugsanlega hægt og jafnvel frekar líklegt að ég taki mig til og mæti í þessum rauða í þýsku í fyrsta tíma. Að sjálfsögðu…

Preen

26. janúar 2008

Það var eins og það hafi gerst í gær. Heimurinn stoppaði og allt varð hljótt.Tárin tóku að streyma niður kinnarnar og bros eins og þið hafið aldrei séð læddist á varirnar. Ójá, vorlína Preen 2007. Stuttir þröngir teygju-kjólar eins og þeir gerast bestir. Það var ekki bara Christopher Kane(sjá grein neðar) sem var í sníp-síðu teygjukjólunum síðasta vor. Preen masteraði þá líka og það svona fjandi vel. Kæru lesendur, ég gef ykkur: VORLÍNU PREEN 2007!

(Errm…er ég kannski…of dramatísk? Kannski.)







Ég mátaði meira að segja fyrri gula kjólinn í Trilogiu í stærð 00(xxxS) sem er náttúrulega “wishful thinking” en það er samt einhvernveginn þannig að ég næ að troða mér í hvað sem er ef það er nógu flott. Rennilásin var bara bilaðu svo að ég hefði litið ansi kjánalega út og fyrir 60 þúsund vill maður líta aaaðeins betur en kjánalega út. Þetta er samt brill flottur kjóll.

Það sem ég elska mest við Preen eru falleg, fáguð og einföld sniðin og hlutlausir litir, það er ekki of mikið að gerast sem er fínt enda eiga sniðin að njóta sín sem best.

Og hérna er vorlína Preen í ár:

Þetta er engin “vorlína Preen 2007″ en hey, það er komið 2008 þannig að það er skiljanlegt.

Vonandi kemur þetta samt í Trilogiu*krossarfingur*

Ég er hamingjusamasta hnátan á jarðríki. Ójá, ég vann mín fyrstu eBay boð og er stoltur eigandi eftirfarandi hluta:

Feel free to comment on this awesomeness!!(Þýðing takk? Já því fólk hefur nefnilega haft það á orði við mig að beiðni mín um þýðingu á orðatiltækinu “SCORE!” hafi vakið almenna lukku og stækkað aðdáandahóp minn til muna. Því hver elskar ekki reglulega hnyttin heilabrot, nú ég bara spyr!? )

En aftur að vörunum, allt þetta fyrir einungis 5.100 krónur! Ég hef án alls efa fundið mér farveg í lífinu, kaupalki á eBay! Þið sjáið mig kannski einhvertíman næst í sumar, ég verð bissí þangað til við að ýta á refresh allar nætur til að reyna að vinna bráðnauðsynlega hluti eins og kartöfluflögugerðartæki, bumbubana og taftkjóla…og kannski djúpsteikingarpott sem ég gæti komið vel fyrir hliðin á tölvunni(gamall draumur, ég veit ég er ekki ein um hann)
Það kannast kannski einhverjir við lagið “Heaven is a place on earth” með Belindu Carlisle… og fjandinn hafi það! Belinda hafði rétt fyrir sér, þessi staður er til …..og hann heitir eBay!

Ástæða fyrir bloggleysi?

26. janúar 2008

ÉG ER HOOKED Á EBAY! Úfffffffff

Ég er ein stór taugahrúga, hjarta mitt var ekki gert fyrir ebay, því miður. Ég tapaði uppboði á jarðafarahatti í gær og hann var nú þegar innsiglaður í árhátíðar alkæðnaðinn svo nú er ég skemmd manneskja. Mér líður eins og að partur af mér sé glataður, ég er andleg eyðimörk. Semsagt, já…hjarta mitt var ekki gert fyrir Ebay. En svo fattaði ég að maður skrifar bara upphæðina sem maður er í mesta lagi til í að borga og eBay sér bara sjálft um það að bjóða yfir fyrir mann allt það þeirr upphæð. Það tekur allt stressið, eða svona það mesta. Ég mun samt fara að gráta ef að ég fæ ekki kjólinn sem er núna í 20$ en ég er búin að skrifa að ég sé tilbúin að borga 80$. Þegar þessi uppboðanótt er yfirstaðin mun ég yfirgefa “flóann” og halda mig við raunheiminn og blogga t.a.m. Þá get ég sýnt það sem ég er að bjóða í sem er allt einstaklega Blair Waldorf’legt. Já..eins og svo margir er ég orðin algjörlega háð Gossip Girl. Það sem má semsagt lesa út úr þessari færslu er að ég verð auðveldlega háð hlutum.

Gott…gottgott.  Heilbrigður hugsunarháttur…styð’ann!

Nicole Miller

21. janúar 2008

Ég á næstum því eins kjól og þessi úr vorlínu Nicole Miller.

Hvað myndi vera íslenska orðið yfir “SCORE!!!”?

Hattar og Platform skór

21. janúar 2008

Ég er svo ótrúlega veik fyrir svörtum platform skóm. Ég á tvö stykki sem eru nánast eins og eina sem eru alveg eins og uppáhaldsskórnir mínir nema bara svartir, ekki grænir. Hversu geðveikur þarf maður að vera til að eiga sömu skó í sitthvorum litnum? Eða..er það jafnvel algengt?

Grænu skórnir eru líf mitt og yndi og þrátt fyrir að vera með u.þ.b 10 cm hæl líður mér eins og ég sé að labba á skýjabólstrum bornum uppi af 1000 litlum englum í gullklæðum sem syngja mér lofsöngva. En þið vitið, ég vil ekki taka of sterkt til orða.

Hérna er samt Michael Kors par sem ég þrái, já..ég fæ aldrei nóg af svörtum platform skóm.

Annars er ég komin með dálítið ógeð af svona spöngum með einhverju skrauti á annarri hliðinni sem er ekkert alltof gott þar sem ég á nokkrar slíka. Mér finnst þetta bara einhvern vegin búið, ekkert frumlegt lengur. Þreytt. Allavegana hérna heima því í raun kom þetta seinna úti þó að þetta hafi meira að segja aldrei orðið jafn vinsælt þar. En maður sér þetta stöku sinnum á pöllunum og svo virðist sem einhverjir hérna heima hafi gripið þetta og gert þetta að eins stóru concepti og það varð. Önnur hver stelpa var með svona á airwaves svo að mig minnir. Og svo virtist sem að allar spangir yrðu gulls ígildi við það eitt að það var svona skraut á þeim, þær hækkuðu um tæpar 5000 krónur í verði við það að eitt stykki taublóm bættist á hana. Mig langar að sjá eitthvað nýtt og ferskt. Það sem ég þrái reyndar mest núna er eitt stykki elegant jarðafarahattur með svörtu neti eftir að hafa séð einn slíkan í vorlínu Ralph Lauren.

Jájá ég veit, þetta engin frumkvöðla hugsun í gangi hjá mér í þeim málum en samt sem áður…sorgmædda ekkjan í öllum second class Hollívúdd myndunum mun öðlast nýt líf í fórum mínum. Vá..þessi setning hljómaði undarlega. En hvað um það hérna er einn sjúklega plain…

..eða ekki. En jæja ég fann þennan og mig langar semí mikið að hringja í Geira á Goldfinger til að tékka hvort ég getið tekið við súlunni 1-2 kvöld til að kaupa þennan 120 dollara hatt. Yrði það þess virði?

Það er samt enginn sem masterar hatta jafnvel og Isabella heitin Blow sem toppaði sig síðan svo sannarlega eftir að hún var farin yfir móðuna miklu.

Ég er engin Isabella og mun seint ná að toppa eða yfirleitt koma með tærnar þar sem drottning hattanna hafði hælana. Sem er kannski í lagi þar sem íslensk veðrátta bíður svosem ekki upp á mikla hattanotkun .

Miu Miu

18. janúar 2008

Kirsten Dunst er aðalhetjan í nýju Miu Miu auglýsingum og tekur þar við af Lindsay Lohan. Samt frekar skrýtið að sjá Miuccia Prada fara nákvæmlega sömu leið í auglýsingunum, þær eru nánast alveg eins fyrir utan það að eldrauðhærðri Lohan er skipt úr fyrir ljóshærða Kirsten Dunst. Ekkert ferskt eða nýtt, þetta hefði einfaldlega getað verið framhald af hinni herferðinni. En það breytir því ekki vor 2008 hjá Miu Miu er ógeðslega viðbjóðslega friggin’ flott lína. Eftir mikil persónuleg vonbrigði með vorlínu Christopher Kane þá er þett eins og ferskur blær sem réttlætir allan þann aur sem ég eyði í þessi fjandans tískublöð. Ekki það að ég sé á leiðinni í að fjárfesta í einhverju út þessari línu, langt í frá…en þetta er dáldið eins og þegar ég sá Luella Bartley myndaseríu í franska Vogue snemma á síðasta ári og það algjörlega mótaði næstu 2-3 mánuði fatalega séð hjá mér. Þetta er ..innblástur. Er ég ein á því að þetta hljómi allt einum og háfleygt og sorglega hjá mér? Nei held ekki..



Ég er allavega fegin að hún innsiglaði það að stutt er enn þá mjög sterkur leikur í sumar.

En hér er Kirsten hress á kantinum.


Þetta eru reyndar súper flottar myndir, en hey, það toppar ekkert Marc Jacobs auglýsingarnar eftir að hann fékk Jürgen Teller til liðs við sig í þeim málum. Dakota Fanning auglýsingarnar voru epic og stálu algjörlega hugmyndinni frá mér að fá eitthvað svo einfalt og hlutlaust eins og barn til að sýna tísku. Súrrealískt. Reyndar væri ég ekki sú fyrsta í heimi, ég samt tróð 6 ára frænku minni í púffermaskyrtu og smellti nokkrum en ég vil ekki eyðileggja æsku hennar ef hún yrði svo keðjureykjandi barnastjörnumódel…sem væri sko eiginlega garanterað ef ég hefði birt myndirnar enda voru þær alveg jafn epic og þær sem félagi minn Jurgen tók.

Og Jürgen tókst meira að segja að gera geimveruna Victoriu Beckham kúl.

Engu minni geimveru samt sem áður, en þó allavegana kúl geimveru.

McQ

18. janúar 2008

Vorlínan 2008 er að gera góða hluti. Klassískt og elegant með smá dash af frumleika ot ..raunsæi. Eitthvað sem fer öllum og lítur örugglega jafn vel út á eðlilegu fólk sem er …tja..yfir 50 kílóum og undir 1.80 á hæð. Einfaldir og ekki of brjálaðir litir og falleg form hjálpa líka til við vikunnugleikann. Virkar vel hjá honum að taka bara einn lit í heilan alkæðnað(outfit?) eins og er búið að vera mikið í gangi undanfarið.  Sterkir litir eins og mátti t.d. sjá hjá Lanvin nema bara á minna hversdaglegum fötum

En það sem vakti þó aðallega áhuga minn er að karlmannsfötin í vor 2008 hjá McQ (Alexander McQueen) voru nógu áhugaverð til að fanga áhuga minn sem er frekar óvenjulegt enda er ég það sjálfhverf að ef það hentar mér ekki þá nenni ég ekki að pæla í því.

Annars tel ég mig hafa séð álíka mynstur bæði í línu frá meistara Jeremy Scott og Cassette Playa annars vegar: